Hér fyrir neðan eru til sýnis hluti af verkum hausthópsins í textil, einnig upplýsingar um verkaðferðir sem eru kenndar og námsmat.
7. H4
1. Vélsaumur: Kennd er þræðing á saumavél, bæði undir- og yfirþræðing. Einnig að taka einföld mál, velja snið, leggja snið á efni og merkja fyrir saumförum.
Nemendur sauma beinan saum, sikksakka í brún, brjóta inn og merkja fyrir faldi og sauma tæpt í brún.
Verkefnið er að sauma einfalda flík t.d. náttbuxur, stuttbuxur eða aðrar einfaldar buxur, náttkjól, stuttermaboli, pils eða peysu.
2. Prjóna og/eða hekla, vefa: prjóna á hringprjón, eða sokkaprjóna. Læra uppfitjun, úrtöku og fella af.
· Prjónaverkefni er húfa, vettlingar, handstúkur eða annað prjónastykki.
· Hekluverkefnið er þvottapoki, lítill dúkur, sjal eða annað heklustykki.
· Vefnaðarverkefnið er trefill, taska, húfa eða annar vefnaður.
3.Val: ýmisleg verkefni með alskonar aðferðum t.d. útsaumur, hnýting, þæfing ofl.
Innan valsins er lögð áhersla á viðgerðir og endurnýtingu. Notaðar eru gamalar flíkur, þær bættar eða breytt í aðra nytjahluti.
Hér er skýring á þáttum sem gefið er fyrir eru þekking, leikni, áhugi, samvinna, vinnubrögð.