
Hér fyrir neðan eru til sýnis hluti af verkum hausthópsins í textil, einnig upplýsingar um verkaðferðir sem eru kenndar og námsmat.
4.H4
Kennari: Elín Gísladóttir
1.Vélsaumur , taulitun og útsaumur: Nemdendur læra að sauma beinan saum og sikksakk. Verkefnið er taupoki. Einnig skreyta þau hann með taulitum og útsaumi ( læra eitt eða fleiri af þessum útsaumssporum: varplegg, tunguspor eða lykkjuspor). Pokinn er gerðu í anda skólalistakonunar Barböru Árnason. Köllum við pokana stundum Barbörupoka og er komin hefð á að börn í 4.bekk búi til einn slíkan. Þetta verkefni hefur gengið um árabil og var skapað af Valgerði Jónsdóttur fyrrverandi textilkennari Melaskóla.
2.Prjón: Nemendur læra að fingraprjón og prjóna á tvo sokkaprjóna, að fitja upp, prjóna garðaprjón, sauma saman og ganga frá endum.
Verkefnið er prjónadýr/leikfang eða annað lítið prjónastykki.
3.Val: Ýmisleg verkefni með allskonar aðferðum, útsaumur, vélsaumur, prjón, hekl, vefnaður, hnýting, þæfing.
Hér er skýring á þáttum sem gefið er fyrir eru þekking, leikni, áhugi, samvinna, vinnubrögð.